,,Þetta var hrikalega svekkjandi, að tapa á heimavelli eftir gott gengi hérna heima síðustu vikurnar," sagði Magnús Gylfason þjálfari Hauka eftir 1-2 tap gegn KA í 1. deild karla í dag.
,,Það vantaði bara einbeitingu upp við markið, þá hefðum við getað unnið þennan leik en við vorum ekki klárir í verkefnið í dag og þess vegna fór þetta svona, að við töpuðum leiknum.2
,,Það var eðlilega mikið skap í mönnum, við vorum ekki alveg að klára það sem við ætluðum að gera. Menn vita alveg hvað þetta þýðir, við erum að henda okkur endanlega út úr þessari baráttu með að fara upp. Þó það hafi ekki verið markmið þá vorum við allavega í þessari baráttu og ekkert langt undan en núna held ég að við getum kvatt það í bili."
,,Ég segi ekkert að það sé útilokað, það er nóg af stigum í pottinum en nú þurfum við að treysta á að Selfoss fari að misstíga sig. Við erum ekkert að fara að vinna marga leiki ef við klárum ekki færi."
Nánar er rætt við Magnús í sjónvarpinu hér að ofan.
























