,,Þetta virkilega góður sigur. Við lögðum hart að okkur. Við börðumst til enda og þeir misstu mann af velli sem skipti sköpum. Mér fannst við verðskulda sigurinn fyrir þeim sem sáu leikinn," sagði Tomi Ameobi framherji BÍ/Bolungarvíkur sem skoraði bæði mörk liðsins í 1-2 sigri á toppliði ÍA í 1. deildinni í kvöld. Fyrri leik liðanna hafði lokið með 0-6 sigri ÍA svo nú var blaðinu snúið við.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 2 BÍ/Bolungarvík
,,Þetta var allt annar leikur, við urðum að bæta upp fyrir hann. Við gerðum mistök heima sem kostuðu okkur og í hvert sinn sem þeir skutu skoruðu þeir. En í dag komum við hingað með öðruvísi hugarfar og það borgaði sig."
Ameobi fiskaði vítaspyrnu eftir samskipti við Reynir Leósson varnarmann ÍA í fyrri hálfleiknum. Á meðan viðtalinu stóð grínuðust þeir sín á milli um það atvik þar sem Reynir vill meina að hann hafi látið sig falla.
,,Til að vera sanngjarn, ef hann hefði verið í sömu stöðu þá hefði hann gert það sama og hann var sammála mér um það. Stundum fær maður þetta og stundum ekki," sagði hann en átti þetta þá aldrei að vera víti?
,,Ég ætla ekki að segja það en þetta er ákvörðun dómara að lokum, en þeir fengu tækifæri til að skora líka úr víti en gerðu það ekki svo það jafnar þetta út."
Ameobi skoraði tvö mörk í leiknum, fyrra úr vítinu og svo það seinna með skalla.
,,Fyrra var bara víti en það seinna kom eftir frábæra sendingu frá Nicky Deverdics og ég þurfti í raun ekki að gera mikið."
Eftir leikinn var förinni svo heitið í bæinn með leikmönnum úr ÍA liðinu.
,,Ég held að við verðum nokkrir í Reykjavík. Við þekkjum Mark (Doninger) og Gary (Martin) og ætlum að vera með þeim," sagði hann en fær hann þá að hlæja að þeim eftir sigurinn?
,,Sko... þeir eru að komast upp og unnu okkur 6-0 svo það er kannski ekki mikið sem ég get sagt."
























