Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
   mán 15. ágúst 2011 22:10
Örvar Arnarsson
Bjarnólfur: Má reyna á hvort dómari megi gefa sjálfum sér gult
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Víkingar voru sjálfum sér verstir í kvöld þegar andlaust lið þeirra lá fyrir FH, 1-3. Víkingar voru manni fleiri bróðurpart leiksins en náðu aldrei að nýta sér þann liðsmun. "Þetta var gríðarleg vonbrigði, þessi leikur í kvöld. Þá er ég ekkert að tala um fótboltalega endilega heldur voru vilji og hugarfar ekki til staðar" sagði Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkinga, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  3 FH

Víkingar mættu sterku liði FH sem yfirspilaði Víkinga á meðan leikmenn liðanna voru jafnmargir "FH-ingarnir svoleiðis yfirspiluðu okkur í karakter og að vilja vinna þennan leik."

Skringilegt atvik gerðist um miðjan seinni hálfleik þegar Helgi Sigurðsson virtist liggja óvígur eftir dómara leiksins "Já, nei ég tók nefnilega ekki eftir því. Það má reyna á þessa reglu hvort dómarinn megi að gefa sjálfum sér gult spjald fyrir að kýla í hann eins og menn voru að lýsa fyrir mér."

Nánar er rætt við Bjarnólf í sjónvarpinu hér að ofan
Slapp
banner
banner
banner