„Þetta er eins og við lögðum upp með. Við ætluðum okkur að vinna fyrsta leikinn og byrja þetta vel,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19, eftir 2-1 sigurinn á Slóveníu í dag.
„Ég held að við höfum aldrei spilað við Slóveníu í þessum aldursflokki þannig að við ætluðum að bæta liði í safnið sem við höfum ekki tapað fyrir og höfum unnið í Evrópu. Við erum mjög glöð að fara svona inn í riðilinn.“
„Ég er ánægðastur með að menn héldu leikskipulaginu nokkuð góðu og voru rólegar á boltann og þorðu að spila honum. Það tók okkur svolítinn tíma að finna veikleikana þeirra og nýta okkur þá en það kom og við hefðum getað skorað fleiri mörk í dag því þær fengu ekki færi á okkur.“
Nánar er rætt við Ólaf Þór í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
























