,,Þetta var allt í lagi leikur. Mér fannst þeir samt töluvert betri en við lágum samt á þeim og sköpuðum nokkur hálffæri en þetta var samt ekki nógu gott," sagði markaskorari Víkinga í dag, Björgólfur Takefusa eftir síðasta leik Víkinga í efstu deild.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 1 Víkingur R.
,,Í síðustu þrem leikjum með þessum meðtöldum erum við bara að spila upp á stoltið þannig að það var ekkert erfitt að mótivera sig, en það er náttúrulega hundleiðinlegt að vera að spila ekki upp á neitt,"
,,Mér sýndist fyrri vítaspyrnudómurinn geta verið réttur en í seinna vítinu voru Framararnir sjálfir að spurja mig á hvað hann væri að dæma,"
Aðspurður hvort að hann myndi halda áfram að spila og þá með Víkingum svaraði Björgólfur.
,,Ég verð pottþétt áfram í boltanum, ég er mjög langt frá því að vera hættur ég hef það gaman að þessu og finnst það gaman að skora. Hvar ég verð hef ég ekki hugmynd, Ég hef klárlega löngunina til að spila í efstu deild og strákarnir báðu mig reyndar um að koma með e-mailið mitt hérna, ég er ekki búinn að auglýsa mig nóg. Það er [email protected]" sagði Björgólfur léttur í bragði
Nánar er rætt við Björgólf í sjónvarpinu hér að ofan.























