Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   fim 27. desember 2018 16:30
Elvar Geir Magnússon
Marco Silva: Sá Theo Walcott sem ég vil
Þrátt fyrir að hafa ekki skorað í 5-1 stórsigri Everton gegn Burnley í gær þá átti Theo Walcott frábæran leik fyrir þá bláu.

Eftir leikinn þá gekk Marco Silva, stjóri Everton, upp að Walcott og sagði við hann: „Þetta er sá Theo Walcott sem ég vil!"

Mike Keegan hjá Daily Mail segir að frammistaða Everton í leiknum hafi verið nánast fullkomin miðað við aðstæður.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnu fyrir Everton í leiknum í gær en liðið er í áttunda sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner