Paul Pogba er besti miðjumaður Evrópu þrátt fyrir vonda átján mánuði hjá Manchester United. Þetta segir Phil Neville, fyrrum leikmaður United.
Pogba hefur sýnt sínar bestu hliðar fyrir United síðustu tvo leiki, síðan félagið skipti um stjóra og Ole Gunnar Solskjær tók við.
Pogba varð heimsmeistari með Frökkum síðasta sumar en hefur gengið erfiðlega að ná sömu hæðum með félagsliði sínu.

„Ole hefur fengið leikmenn til að njóta sín, spila skemmtilegan sóknarbolta. Hann hefur sagt allt rétt og gert allt rétt," segir Phil Neville.
„Þegar Paul Pogba er á deginum sínum er enginn miðjumaður í Evrópu betri. Hann átti samt slaka 18 mánuði hjá félaginu eftir að hafa lent upp á kant við fyrrum stjóra."
„Hann er besti leikmaður Manchester United þegar hann er i stuði og með svona frammistöðu á hann að skora 12-15 mörk á tímabili."
„Ég held að Pogba hefði farið ef ekki hefði verið skipt um stjóra. Samband hans við Jose Mourinho var komið á endastöð. Hann var kominn á bekkinn."
Manchester United er í sjötta sæti en liðið fær Bournemouth í heimsókn á sunnudag.
Sjá einnig:
Solskjær: Þetta er sá Paul Pogba sem ég þekki
Athugasemdir