Samkvæmt fréttum frá Argentínu mun Arsenal gera tilboð í Ever Banega, miðjumann Sevilla, í janúarglugganum.
Hinn 29 ára Banega er með 20 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum.
Hinn 29 ára Banega er með 20 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum.
Argentínumaðurinn kom til Sevilla 2014 en þá var Unai Emery, núverandi stjóri Arsenal, við stjórnvölinn hjá spænska liðinu.
Banega vann Evrópudeildina tvívegis með Sevilla áður en hann fór til Inter. Á Ítalíu gekk ekki vel og hann fór aftur til Sevilla.
Síðasta sumar var því haldið fram að Emery hefði persónulega hringt í miðjumanninn til að reyna að sannfæra hann um að koma til London.
Athugasemdir



