Breiðablik vann 3-2 sigur á HK í grannaslag í Lengjubikarkarla í Kórnum í kvöld. Arnar Grétarsson aðstoðarþjálfari Breiðabliks byrjaði leikinn sem miðvörður en meiddist er hann reif vöðva í læri og þurfti að fara af velli.
,,Þetta er ekta derbyleikur og allir þessir leikir eru hörkuleikir, bara barátta og læti en lítið um spilamennsku, og menn tæpir við að fá rauð spjöld og svona fjör," sagði Arnar við Fótbolta.net eftir leikinn.
Nánar var rædd við Arnar í sjónvarpsviðtalinu sem má horfa á hér að ofan.
























