,,Við unnum Futsal með 2. flokki en þetta er ennþá sætara," Sagði Soffía Ummarin Kristinsdóttir leikmaður Þróttar eftir 3-2 sigur á Völsungi í framlengdum úrslitaleik C-deildar Lengjubikars kvenna í dag.
Soffía skoraði sigurmarkið í leiknum í síðari hluta framlengingar með þrumuskoti fyrir utan teig beint í samskeytin.
,,Ég var bara aðeins að spara þetta til að hafa þetta smá spennandi," sagði hún. ,,Það er langskemmtilegast þannig, áhorfendur höfðu gaman af þessu og svona. Þessi var allan tímann inni."
Nánar er rætt við Soffíu í sjónvarpsviðtalinu hér að ofan.
























