,,Mörkin sem við fengum á okkur í dag voru mjög ódýr og auðvelt að koma í veg fyrir svoleiðis mörk," sagði Orri Freyr Hjaltalín fyrirliði Grindavíkur eftir 1-2 tap gegn VAl í kvöld.
,,Mér fannst við vera ofan á allan seinni hálfleikinn en við fáum á okkur klaufalegt mark í byrjun. Við komum svo sterkir til baka og jöfnum en það dugði ekki lengi því við fengum á okkur annað klaufamark strax á eftir."
Grindavík hefur enn ekki fengið stig í deildinni en skoraði sitt fyrsta mark í dag.
,,Þetta er á uppleið en það eiga flestir leikmenn í þessu liði nóg inni og það virðist ekkert vera að falla með okkur þessa dagana," sagði Orri að lokum.























