,,Ég er mjög sáttur við að taka þetta stig gegn gríðarlega sterku HK liði. Þetta var baráttuleikur, bardagi frá fyrstu mínútu," sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR eftir markalaust jafntefli gegn HK í kvöld.
,,Við vissum að við þyrftum að mæta þeim fast því þeir spila einnig fast og reyndar góðan fótbolta. Við vorum að reyna að koma í veg fyrir að þeir næðu þeim köflum í þennan leik og ég held að það hafi tekist."
,,Mér fannst þeir reyndar vera ívið sterkari í fyrri hálfleik en mér fannst við svara því í seinni hálfleik og vera ívið sterkari í seinni hálfleiknum."























