Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnidæmi fyrir þessa deild.
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
   þri 31. ágúst 2010 23:04
Magnús Már Einarsson
Þórður Einarsson: Fagnið lengsti spretturinn minn í leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
,,Við gerðum eiginlega akkúrat það sem þurfti. Við vorum ekki að spila neinn sérstakan leik og vorum langt frá okkar besta en þetta nægði sem betur fer," sagði Þórður Einarsson leikmaður KB eftir að liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í úrslitakeppni 3.deildarinnar eftir framlengdan leik gegn Berserkjum í kvöld.

KB tapaði 3-2 í kvöld en fór áfram samanlagt 4-3. Þórður skoraði mikilvægt mark þegar hann minnkaði muninn í 2-1 í leiknum í kvöld.

,,Ég þurfti andskotann ekki að gera neitt. Gummi (Guðmundur Guðnason) gerði þetta fáránlega vel, ég veit ekki hvernig hann komst framhjá þeim þremur. Ég var reyndar búinn að klúðra þremur dauðafærum í leiknum þannig að ég skuldaði svolítið," sagði Þórður sem fagnaði markinu ógurlega.

,,Maður fékk svolítið kick þegar maður skoraði en þetta var lengsti spretturinn minn í leiknum held ég."

KB mun núna mæta Dalvík/Reyni í undanúrslitunum en fyrri leikurinn verður í Breiðholtinu á laugardag.

,,Við erum ekki að fara að keyra á Dalvík til að tapa, ég held að það sé alveg ómögulegt. Ég held að fyrirfram hafi þeir verið líklegastir til að vinna þessa deild og með bestu leikmennina. Ég held að það hljóti að vera einhverjar brotalamir í þeirra liði. Þetta verður erfiður leikur en við eigum alveg séns."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner