Gunnleifur Gunnleifsson var ekki sáttur við úrslit kvöldsins en Ísland tapaði 1-2 fyrir Norðmönnum á laugardalsvellinum í kvöld.
,,Sérstaklega miðað við hvað við vorum að gera í fyrri hálfeik. Okkur fannst við vera að spila mjög vel í fyrri hálfleik. Hefðum átt að refsa þeim og kála þeim með öðru marki og þá hefði þetta litið öðruvísi út en við gáfum þeim alltof mikla sénsa í seinni hálfleik," sagði Gunnleifur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Nánar er rætt við Gunnleif í sjónvarpinu hér að ofan.























