,,Við ákváðum bara að klára þetta með stæl og sýna hvers megnugar við erum. Við erum mikið betri en við erum búnar að sýna í sumum leikjum í sumar," sagði Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar eftir 0-8 sigur á KR kvöld.
Sandra skoraði sjálf eitt marka Stjörnunnar úr vítaspyrnu í seinni hálfleik.
,,Þetta er búið að vera draumur í sumar að taka eitt víti eða einhverja aukaspyrnu eða eitthvað, það er fínt að fá að gera þetta svona í lokin," sagði hún.
,,Ég er markaskorari af guðs náð svo ég er bara chilluð."
Nánar er rætt við Söndru í sjónvarpinu að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























