Olgeir Sigurgeirsson var fyrirliði Breiðabliks þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Stjörnuna og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í dag. Olgeir var að vonum hæstánægður með titilinn.
„Við ætlum að gera þetta aftur á næsta ári, þetta er svakalega skemmtilegt,“ sagði Olgeir.
„Þetta jafntefli skiptir engu máli. Þetta er ekki einn leikur, þetta eru 22 leikir. Þegar uppi er staðið erum við meistarar þannig að þetta veltur ekki á einum leik. Við vorum bara bestir yfir þessa 22 leiki.“
Olgeir hrósaði stuðningsmönnunum fyrir frábært sumar.
„Stuðningsmennirnir eru búnir að vera geðveikir, ekki bara í dag, það er troðfullt á hvern einasta leik undanfarið. Þessir stuðningsmenn sem við eigum eru svakalegir, líklega bestu stuðningsmenn á landinu.“
Olgeir veit ekki hvernig hann ætlar að fagna en sagðist vera gersamlega búinn á því eftir leikinn.
„Ég veit það ekki, ég stend varla í lappirnar, ég er svo þreyttur. Ég hef ekki spilað 90 mínútur síðan ég veit ekki hvenær, mig langar bara að fara í heitan pott og fá mér einn bjór eða eitthvað,“ sagði Olgeir.






















