Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, opinberaði í dag hópinn sem leikur gegn Hvíta Rússland í undankeppni EM 2017 í Minsk þann 12. apríl.
„Við fækkum um þrjá leikmenn frá því á Algarve mótinu en stóra breytingin er sú að Sif Atladóttir kemur til baka. Annars eru þetta mest leikmenn sem hafa verið í kringum liðið. Elín Metta kemur aftur inn í mótsleik eftir frábæra frammistöðu í Portúgal," segir Freyr.
„Ég ákvað að taka Sif ekki með til Portúgal þar sem álagið er gríðarlega mikið, mikið spilað og æft á stuttum tíma. Ég tók hana ekki með til að forðast bakslag. Það er kjörinn tímapunktur að fá hana inn núna."
„Við þurfum að vera meðvituð um að það þarf að ná þremur stigum í Hvíta Rússlandi. Svo er hægt að einbeita sér að Skotaverkefninu eftir það. Við þurfum öll að vera á sömu bylgjulengd varðandi það. Við ætlum okkur að vinna Hvíta Rússland, ef við ætlum okkur að vinna þennan riðil er ekki svigrúm til að tapa stigum þarna."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























