„Við þurftum að bíða lengi eftir þremur stigum í efstu deild, 13 ár, og þau eru komin í hús núna," sagði Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, þjálfari KA, eftir 3-1 sigur á Breiðabliki í dag.
KA byrjaði leikinn af krafti og um miðjan seinni hálfleikinn voru þeir 3-0 yfir. Túfa segir það að taka sigur hafi alltaf verið aðalmálið.
KA byrjaði leikinn af krafti og um miðjan seinni hálfleikinn voru þeir 3-0 yfir. Túfa segir það að taka sigur hafi alltaf verið aðalmálið.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 KA
„Við vorum komnir hingað til að sækja sigur og það sást frá fyrstu sekúndu að menn voru klárir í það. Allir leikmenn, með vindinn í bakinu frá stuðningsmönnum, lögðu sig fram allan leikinn."
Þetta var fyrsti leikur KA í úrvalsdeild í langan tíma og Túfa segir að menn hafi beðið leiksins með mikilli eftirvæntingu.
„Menn voru gríðarlega spenntir, en spennan hefur verið mikil hjá öllum sem tengjast KA undanfarna daga. Þetta sást á vellinum."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.






















