Stefán Gíslason, þjálfari Hauka, var skiljanlega frekar sáttur eftir 5-0 sigur á Leikni F. í Inkasso-ástríðunni í dag.
Haukarnir komust yfir eftir 22 sekúndur og litu aldrei um öxl.
Haukarnir komust yfir eftir 22 sekúndur og litu aldrei um öxl.
Lestu um leikinn: Haukar 5 - 0 Leiknir F.
„Það losnaði aðeins um þetta hjá okkur í dag, við sköpuðum mikið og hefðum getað skorað meira, en það var margt jákvætt," sagði Stefán þegar Fótbolti.net heyrði í honum eftir leik.
„Við byrjum af krafti, það er ekki alltaf sem okkur tekst það, í báðum hálfleikjunum og fylgjum því á eftir."
„Við vorum betri aðilinn í dag."
Stefán var spurður að því í viðtalinu hvort þetta væri besti leikur Hauka í sumar.
„Ég veit það ekki. Jú, ef þú skoðar úrslitin þá er eiginlega ekki hægt að segja annað."
Nú eru framundan mjög mikilvægir leikir fyrir Hauka.
„Ég er búinn að tala um það fyrir hvern einasta leik í sumar að hver leikur sé afgerandi fyrir það hvar við ætlum að vera og við erum búnir að tala um það fyrir þrjá síðustu leiki að ef við ætlum að hanga í efri hlutanum þá þurfum við að klára þessa leiki."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu að ofan.





















