Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   lau 02. maí 2026 07:50
Elvar Geir Magnússon
Ipswich, Millwall eða Boro? - Eitt þessara liða fer upp í dag
Kieran McKenna, stjóri Ipswich.
Kieran McKenna, stjóri Ipswich.
Mynd: EPA
Mynd: Millwall
Maraþoninu í Championship-deildinni lýkur í dag þegar komið er að lokaumferð deildarkeppninnar en allir leikirnir hefjast 11:30.

Það ræðst hvaða lið endar í öðru sæti og nær því ásamt Coventry að komast beint upp í úrvalsdeildina. Liðin sem hafna í sætum 3-6 fara svo í umspilið fræga.

Ipswich er í bílstjórasætinu, öðru sæti, og vonast eftir því að komast beint aftur upp eftir eins árs fjarveru frá deild þeirra bestu.

Millwall er í þriðja sæti og á möguleika á því að spila í efstu deild í fyrsta sinn í 36 ár og þá heldur Middlesbrough í vonina um að komast upp og binda endi á níu ára bið eftir því að spila í úrvalsdeildinni.

Í dag er einnig spenna í baráttunni um umspilssæti. Wrexham, Hull og Derby eru með í þeirri baráttu. Fallbaráttan er ráðin en Oxford, Leicester og Sheffield Wednesday eru fallin niður í C-deildina.

Fótbolti.net fylgist með lokaumferðinni og allir mikilvægustu leikirnir verða í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Sjáðu stöðuna hér fyrir neðan

Baráttan um annað sætið
11:30 Ipswich Town - QPR
11:30 Millwall - Oxford United
11:30 Wrexham - Middlesbrough

Baráttan um umspilssæti
11:30 Hull City - Norwich
11:30 Derby County - Sheffield Utd

Aðrir leikir dagsins
11:30 Watford - Coventry
11:30 Portsmouth - Birmingham
11:30 Sheff Wed - West Brom
11:30 Bristol City - Stoke City
11:30 Swansea - Charlton Athletic
11:30 Preston NE - Southampton
11:30 Blackburn - Leicester
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 45 27 11 7 93 45 +48 92
2 Ipswich Town 45 22 15 8 77 47 +30 81
3 Millwall 45 23 11 11 62 49 +13 80
4 Middlesbrough 45 22 13 10 70 45 +25 79
5 Southampton 45 21 14 10 79 55 +24 77
6 Wrexham 45 19 13 13 67 63 +4 70
7 Hull City 45 20 10 15 68 65 +3 70
8 Derby County 45 20 9 16 66 57 +9 69
9 Norwich 45 19 8 18 62 54 +8 65
10 Birmingham 45 17 12 16 56 55 +1 63
11 Swansea 45 17 10 18 54 58 -4 61
12 Preston NE 45 15 15 15 54 59 -5 60
13 Bristol City 45 16 11 18 57 59 -2 59
14 QPR 45 16 10 19 61 70 -9 58
15 Sheffield Utd 45 17 6 22 64 65 -1 57
16 Watford 45 14 15 16 53 61 -8 57
17 Stoke City 45 15 10 20 51 54 -3 55
18 Portsmouth 45 14 12 19 48 63 -15 54
19 Charlton Athletic 45 13 14 18 43 55 -12 53
20 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
21 West Brom 45 13 14 18 47 56 -9 51
22 Oxford United 45 11 14 20 45 57 -12 47
23 Leicester 45 11 16 18 57 68 -11 43
24 Sheff Wed 45 1 12 32 27 88 -61 -3
Slapp
banner
banner