Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   lau 02. maí 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sá eftir því að hafa yfirgefið Man City
Mynd: Al Nassr
Aymeric Laporte, fyrrum varnarmaður Man City, sá eftir því að hafa yfirgefið enska félagið á sínum tíma.

Laporte er 31 árs gamall Spánverji en hann spilaði með Man City frá 2018-2023. Hann vann ensku deildina fimm sinnum, Meistaradeildina einu sinni og enska bikarinn tvisvar með liðinu.

Hann yfirgaf félagið og gekk til liðs við Al-Nassr. Hann er í dag leikmaður Athletic Bilbao.

„Ég sá eftir því að hafa farið því ég var hjá besta liði í heimi. Það er óviðjafnanlegt hvernig félagið sér um leikmennina sína. Maður áttar sig fyrst á því þegar maður fer. Þegar ég kom þá var þetta magnað en eftir því sem tíminn leið varð þetta eðlilegt og maður tók þessu sem sjálfsögðum hlut," sagði Laporte.

„Þetta er ógleymanleg reynsla. Ég þakka félaginu kærlega fyrir. Þetta var eitt besta augnablik lífsins, ég get ekki sagt neitt slæmt um þetta félagi."
Slapp
banner
banner
banner