,,Ég er búinn að hugsa þetta síðustu vikuna og tók ákvörðun í gær. Þetta er búinn að vera mjög erfiður dagur, ég get alveg viðurkennt það," sagði Þorlákur Árnason við Fótbolta.net í dag en hann hefur ákveðið að hætta sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar eftir að liðið varð Íslandsmeistari í sumar.
,,Ég er búinn að vera hjá Stjörnunni í átta ár. Í fimm ár sem yfirþjálfari og í þrjú ár með stelpurnar. Þetta hefur verið frábær tími."
,,Mér fannst vera kominn tími á þetta. Ég er búinn að vera lengi á sama vinnustað og mér fannst vera kominn tími á að hætta hjá Stjörnunni."
Þorlákur þjálfar U17 ára landslið karla en nokkur félög hafa reynt að fá hann í sínar raðir undanfarin ár. Þorlákur hefur meðal annars verið orðaður við sitt gamla félag ÍA en hann segist ekki vera á leið á Akranes.
,,Það er ekki að fara að gerast. Ég get svarað því," sagði Þorlákur sem útilokar þó ekki að taka annað þjálfarastarf að sér.
,,Ég á von að ég vinni við fótbolta, sama í hvaða formi það verður. Það kemur í ljós á næstu tveimur vikum."
Stjarnan vann alla 18 leiki sína í Pepsi-deildinni í sumar og hafði mikla yfirburði.
,,Sumarið í sumar var ótrúlegt. Margir sem fylgjast ekki með kvennaboltanum halda að það sé nóg að skjóta uppi eins og fyrir tuttugu árum síðan en deildin var mjög sterk. Við vorum einu sinni jafnaðar í leik og einu sinni lentum við undir, það sýnir yfirburðina sem við höfðum á öllum sviðum fótboltans."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.





















