Ísak Snær Þorvaldsson og félagar í Lyngby unnu sterkan sigur á Hvidovre í næst efstu deild í Danmörku í dag.
Ísak var í byrjunarliðinu en hann var tekinn af velli í hálfleik þegar staðan var 1-0 Hvidovre í vil. Lyngby kom til baka í seinni hálfleik og vann 2-1.
Lyngby er á toppnum með 48 stig, átta stigum á undan Hvidovre sem er í 3. sæti. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild en sjö leikir eru eftir.
Davíð Snær Jóhannsson spilaði rúman klukkutíma þegar Álasund tapaði 3-0 gegn Bodö/Glimt í efstu deild í Noregi. Álasund er á botninum með tvö stig eftir fimm umferðir.
Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem tapaði 3-0 gegn Stromsgodsedt í næst efstu deild í Noregi. Sogndal er án stiga eftir þrjár umferðir.
Lúkas Petersson var í markinu hjá varaliði Hoffenheim sem tapaði 3-1 gegn Duisburg í C-deildinni í Þýskalandi. Hoffenheim er í 15. sætii með 40 stig.

