Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 18. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Meistararnir geta saxað á forystu Inter
Napoli mætir Lazio á Diego Maradona-leikvanginum
Napoli mætir Lazio á Diego Maradona-leikvanginum
Mynd: EPA
Þrír leikir eru á dagskrá í 33. umferð Seríu A á Ítalíu í dag.

Udinese og Parma eigast við klukkan 13:00. Liðin eru í fínustu málum í deildinni, en ekki beint að berjast um mikið.

Udinese er í 10. sæti með 43 stig á meðan Parma er í 14. sæti með 36 stig og níu stigum fyrir ofan fallsæti.

Ítalíumeistarar Napoli taka á móti Lazio klukkan 16:00. Lazio hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel á útivelli á tímabilinu á meðan Napoli hefur náð í 37 stig af 45 mögulegum á heimavelli. Napoli er í öðru sæti deildarinnar með 66 stig en Lazio í 9. sæti með 44 stig.

Roma og Atalanta mætast þá í Evrópuslag klukkan 18:45 í Róm.

Rómverjar eru í 6. sæti deildarinnar með 57 stig, sem gefur Sambandsdeildarsæti á næstu leiktíð á meðan Atalanta er í 6. sæti með 53 stig. Sigur hjá Roma kemur liðinu upp í fimmta sæti deildarinnar.

Leikir dagsins:
13:00 Udinese - Parma
16:00 Napoli - Lazio
18:45 Roma - Atalanta


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
10 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
11 Udinese 32 12 7 13 38 42 -4 43
12 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
13 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
14 Parma 32 8 12 12 23 40 -17 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner