Fyrsta umferðin í Mjólkurbikar kvenna hefst í dag og þá er spilað í undanúrslitum í neðri deildum Lengjubikarsins.
Tveir leikir hefjast í Mjólkurbikar kvenna klukkan 12:00, en Haukar taka á móti Smára á BIRTU-vellinum á meðan Keflavík fær KR í heimsókn í Nettóhöllina.
Klukkan 13:00 mætast KFR og Álftanes í undanúrslitum C-deildar Lengjubikarsins áður en Víkingur Ólafsvík mætir Dalvík/Reyni í undanúrslitum B-deildar klukkan 15:00.
Leikir dagsins:
Mjólkurbikar kvenna
12:00 Haukar-Smári (BIRTU völlurinn)
12:00 Keflavík-KR (Nettóhöllin)
Lengjubikar karla - B-deild, úrslit
15:00 Víkingur Ó.-Dalvík/Reynir (Ólafsvíkurvöllur)
Lengjubikar karla - C-deild, úrslit
13:00 KFR-Álftanes (Helluvöllur)

