Þýski miðvörðurinn Antonio Rüdiger hefur samþykkt nýjan eins árs samning hjá Real Madrid. Þetta segir ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto á X.
Rüdiger er 33 ára gamall og ekki verið í jafn stóru hlutverki á þessu tímabili og síðustu ár, en það er aðallega vegna meiðsla sem hafa sett strik í reikninginn.
Real Madrid ætlar að losa sig við nokkra leikmenn í sumarglugganum og var Rüdiger sagður á þeim lista.
Samningur hans rennur út eftir tímabilið en samkvæmt Moretto ætlar Real Madrid ekki að missa Rüdiger sem hefur samþykkt eins árs framlengingu.
Madrídingar eru enn ákveðnir í að bæta miðverði við hópinn í sumar í stað David Alaba, en ekki stendur til að framlengja við Alaba sem rennur út á samningi í sumar.


