Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   lau 18. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ísland mætir Evrópumeisturunum á Laugardalsvelli í dag
Eimskip
Glódís Perla mun að öllum líkindum eigna sér landsleikjametið gegn Englandi
Glódís Perla mun að öllum líkindum eigna sér landsleikjametið gegn Englandi
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslenska kvennalandsliðið fær Evrópumeistara Englands í heimsókn á Laugardalsvelli í dag en spilað er í undankeppni heimsmeistaramótsins sem er haldið í Brasilíu á næsta ári.

England vann heimsmeistara Spánverja, 1-0, á dögunum á meðan Ísland marði 1-0 sigur á Úkraínu.

Ísland er í góðri stöðu um þriðja sætið sem gefur þátttöku í umspil um sæti á HM.

Þetta verður þá söguleg stund hjá íslenska liðinu en fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir mun væntanlega slá landsleikjametið. Hún jafnaði met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur gegn Úkraínu er hún spilaði sinn 145. landsleik, en Glódís lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Skotum árið 2012.

Ísland mætti Englandi í fyrri leiknum í riðlinum á City Ground-leikvanginum í síðasta mánuði en þar höfðu Evrópumeistararnir betur, 2-0.

England er á toppnum í riðlinum með 9 stig en Ísland í þriðja sæti með 3 stig.

Leikur dagsins verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Leikir dagsins:
14:00 Spánn-Úkraína (Nuevo Arcangel)
16:30 Ísland-England (Laugardalsvöllur)
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    England 3 3 0 0 9 - 1 +8 9
2.    Spánn 3 2 1 0 6 - 2 +4 6
3.    Ísland 3 1 2 0 1 - 5 -4 3
4.    Úkraína 3 0 3 0 2 - 10 -8 0
Slapp
banner