Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   fös 03. nóvember 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Heimir: Leyfum þeim að njóta þess að vera í hita
Icelandair
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, ætlar að gefa nýjum leikmönnum tækifæri í komandi vináttuleikjum gegn Katar og Tékklandi. Heimir valdi 27 manna hóp og ætlar að gefa sem flestum tækifæri.

„Við fáum vonandi að sjá ný andlit spila meira en hingað til. Þeir leikmenn sem hafa spilað minna hafa verið mikilvægir hluti af sterkri liðsheild hjá okkur og staðið sig frábærlega," sagði Heimir.

Aron Einar Gunnarsson og Alfreð Finnbogason eru í hópnum en ólíklegt er að þeir spili vegna meiðsla.

„Það er ólíklegt að þeir spili. Alfreð fékk eitthvað í nárann aftur og við förum varlega með hann. Aron er búinn að vera meiddur og hann nýtir þennan tíma til að ná sér frískum fyrir félagsliðið sitt. Að þessu sinni er það mikilvægara en landsliðið."

Færri æfingar verða í þessu landsliðsverkefni heldur en í venjulegum landsleikjahléum.

„Við ætlum að taka einn eða tvo daga þar sem við ætlum að gefa þeim alveg frí, leyfa þeim að sofa út og njóta þess að vera í hita," sagði Heimir en hann ákvað að velja hópinn út frá leikmönnum sem voru með í undankeppninni.

„Við notuðum þetta sem hluta af markmiðum okkar. Ef við myndum ná efsta sætinu þá myndum við fara eitthvað með þennan hóp sem kom okkur þangað í hlýju og geta kannski nýtt einn dag í að spila golf. Þá viljum við ekki taka yngri leikmenn inn og henda þeim sem komu okkur til Rússlands út. Auðvitað hefði verið spennandi að skoða yngri leikmenn en það koma tækifæri í framhaldinu fyrir þá."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner