Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 16:45
Brynjar Ingi Erluson
Argentínskur landsliðsmaður á leið til Chelsea
Valentín Barco í leik með Strasbourg
Valentín Barco í leik með Strasbourg
Mynd: EPA
Chelsea er að ganga frá kaupum á argentínska miðjumanninum Valentín Barco en hann kemur til félagsins frá systurfélagi þeirra í Strasbourg í Frakklandi. Þetta segir argentínski blaðamaðurinn Augusto César í dag.

Enska úrvalsdeildarfélagið hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á Barco og reyndi meðal annars að fá hann í janúarglugganum en ekkert varð af skiptunum.

Chelsea yfirgaf ekki viðræðurnar og er nú talið að það sé nánast frágengið að hann gangi í raðir félagsins í sumar.

Barco er bakvörður að upplagi en Liam Rosenior fór að nota hann á miðsvæðinu hjá Strasbourg á síðustu leiktíð þar sem hann hefur blómstrað og er hann í dag lykilmaður í franska liðinu.

Rosenior vill endurnýja kynni sín við Barco í sumar og er stutt í samkomulag.

Barco hefur einnig verið orðaður við Þýskalandsmeistara Bayern München, en Chelsea mun hafa unnið baráttuna.

Miðjumaðurinn á 2 A-landsleiki með Argentínu og skoraði sitt fyrsta mark í 5-0 sigri heimsmeistaranna á Sambíu í vikunni.
Slapp
banner
banner