Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Juventus snýr sér að Emi Martínez og Vicario
Mynd: EPA
Sky á Ítalíu greinir frá því að stórveldið Juventus sé að íhuga að leggja fram tilboð í annað hvort Emiliano Martínez hjá Aston Villa eða Guglielmo Vicario hjá Tottenham.

Juve er í markvarðarleit þar sem Michele Di Gregorio þykir ekki nægilega góður til að verja mark liðsins.

Juve var sterklega orðað við Alisson Becker hjá Liverpool en enska stórveldið bað markvörðinn um að vera áfram í Bítlaborginni út samningstímann. Brasilíski landsliðsmarkvörðurinn er með eitt ár eftir af samningi.

Ítalirnir hafa því ákveðið að snúa sér að öðrum skotmörkum, meðal annars argentínska landsliðsmarkverðinum Martínez sem hefur í tvígang verið valinn besti markvörður heims af FIFA. Hann er 33 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi sínum við Aston Villa.

Martínez var nálægt því að ganga til liðs við Manchester United í fyrra en að lokum varð ekkert úr félagaskiptunum. Hann varð svo Evrópudeildarmeistari með Aston Villa í maí.

Vicario kemur einnig til greina sem arftaki fyrir Di Gregorio, en hann er 29 ára gamall og með fimm landsleiki að baki fyrir Ítalíu.

Inter er einnig sagt vera áhugasamt um að tryggja sér krafta Vicario.

Talið er að Villa vilji fá um 40 milljónir evra fyrir Emi Martínez á meðan Tottenham myndi sætta sig við 20 milljónir fyrir Vicario, sem á tvö ár eftir af samningi.

   21.05.2026 00:46
Emi Martínez puttabrotnaði í upphitun


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner