Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 09:43
Elvar Geir Magnússon
Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville
Powerade
Summerville.
Summerville.
Mynd: EPA
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: EPA
Það er vika í HM og sumarglugginn opnar um miðjan mánuðinn. Ýmislegt áhugavert er í gangi í boltanum og á hverjum degi kíkjum við í slúðurdálka fjölmiðla. BBC tók saman.

Ítalska stórliðið AC Milan hefur áhuga á að kaupa hollenska kantmanninn Crysencio Summerville (24) frá West Ham. Tottenham og Aston Villa hafa einnig áhuga. (Teamtalk)

Atletico Madrid hefur áhuga á hollenska miðjumanninum Tijjani Reijnders (27) hjá Manchester City. (Fichajes)

Kieran McKenna og Thomas Frank eru taldir líklegastir til að taka við Fulham eftir að Marco Silva hætti til að taka við Benfica. (TalkSport)

Manchester United hefur engar áhyggjur af samningsstöðu Bruno Fernandes (31) þar sem félagið er fullvisst um að portúgalski miðjumaðurinn vilji vera áfram sem lengst. (Mirror)

Newcastle hefur gert 21 milljóna punda tilboð í nígeríska kantmanninn Zadok Yohanna (18) hjá AIK í Stokkhólmi. (Expressen)

Ef Atletico Madrid selur argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) gæti félagið notað innkomuna til að fjármagna kaup á enska framherjanum Mason Greenwood (24). (Fichajes)

Roma hefur einnig áhuga á Greenwood en hans fyrrum félag, Manchester United, mun hagnast vegna ákvæðis um framtíðarsölur þegar hann fór til Frakklands. (TeamTalk)

Everton hefur áhuga á brasilíska framherjanum Gabriel Jesus (29) hjá Arsenal en vill að 20 milljóna punda verðmiðinn verði lækkaður. (Football Insider)

Sunderland vonast til að skáka Marseille með því að fá alsírska miðjumanninn Yassine Titraoui (22) frá Charleroi. (FootSur7)

Paris St-Germain vill fá 26 milljónir punda frá Juventus fyrir franska sóknarmanninn Randal Kolo Muani (27). (La Gazzetta dello Sport)

Real Madrid mun væntanlega virkja 17,3 milljóna punda riftunarákvæði til að fá hollenska hægri bakvörðinn Denze Dumfries (30) frá Inter. (Sky Sports)

Óvíst er hvort sóknarmaðurinn Liam Delap (23) fái annað tímabil til að sanna sig hjá Chelsea eftir erfitt fyrsta tímabil þar sem hann skoraði aðeins tvö mörk. (BBC)
Slapp
banner
banner