Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 11:45
Kári Snorrason
Kemur Elíasi til varnar eftir síðasta leik - „Verið einn besti markvörður deildarinnar“
Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland gerðu dýrkeypt jafntefli við Viborg í toppbaráttunni í dönsku úrvalsdeildinni. Liðið er nú tveimur stigum á eftir toppliði AGF nú þegar tveir leikir eru eftir.

Midtjylland kom tvívegis til baka eftir að hafa lent undir og var með 3-2 forystu undir lok leiks en liðið fékk jöfnunarmark á sig á 89. mínútu.

Elías Rafn fékk gagnrýni fyrir frammistöðu sína í gær og sagði Mike Tullberg, þjálfari Midtjylland, Elías hafa átt gera betur í tveimur mörkum sem liðið fékk á sig.

„Við vitum að Elías átti þátt í tveimur af mistökunum. Hann hefur verið einn af bestu markvörðum deildarinnar og hann hefur oft bjargað okkur.

Það er það sem er pirrandi, en þú verður líka að muna hvað hann hefur gert allt tímabilið. Það er hluti af því að vera fótboltamaður og það hefur sérstaklega áhrif á markverði,“
sagði Tullberg eftir leik í gær.


Slapp
banner
banner