Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   þri 05. maí 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Króksmót stúlkna haldið í júní - Ekki eingöngu fótboltamót
Stjarnan vann háttvísisverðlaunin á síðasta móti.
Stjarnan vann háttvísisverðlaunin á síðasta móti.
Mynd: Króksmótið
Króksmót ÓB fer fram á Sauðárkróki og hefur skipað sér fastan sess í fótboltasumri stúlkna í 6. flokki. Mótið fer fram 20. – 21. júní og þar munu koma saman lið víðs vegar að af landinu og taka þátt í skemmtilegri mótshelgi þar sem hverju liði gefst kostur á að spila marga leiki á stuttum tíma.

Samhliða mótinu fer einnig fram hraðmót fyrir 8. flokk, þar sem við sjáum yngstu kynslóðina stíga sín fyrstu skref á vellinum.

Eitt af því sem gerir Króksmót ÓB sérstaklega þægilegt og fjölskylduvænt eru aðstæðurnar á Sauðárkróki. Þar er stutt í allt. Keppnissvæði, gisting keppenda, matsalur, sundlaug, verslanir og tjaldsvæði eru allt í göngufæri. Þegar komið er á Krókinn má því í raun leggja bílnum og njóta helgarinnar án þess að þurfa sífellt að vera á ferðinni milli staða. Þetta gerir skipulagið einfalt, þægilegt og afslappað fyrir keppendur, foreldra og þjálfara.

Auk fótboltaleikjanna býður mótið upp á skemmtilega viðbótardagskrá fyrir þátttakendur. Þar má meðal annars nefna battamót og skotkeppni sem haldin eru samhliða leikjum mótsins. Verðlaun fyrir þær greinar verða veitt á kvöldvöku á laugardagskvöldi, þar sem keppendur koma saman, skemmta sér, kynnast öðrum þátttakendum og búa til góðar minningar með liðinu sínu.

Sauðárkrókur býður einnig upp á fjölbreytta afþreyingu utan keppni. Keppendur fá frítt í sundlaugar Skagafjarðar sem staðsettar eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð og á Hofsósi, fjörusvæðið hentar vel fyrir skemmtilega útiveru og Litli skógur er frábær staður fyrir samveru og hópefli. Þá er margt fleira að sjá og gera í Skagafirði fyrir fjölskyldur sem vilja nýta helgina vel.

Króksmót ÓB er því ekki eingöngu fótboltamót, heldur heil mótshelgi þar sem fótbolti, samvera, góð aðstaða og jákvæð upplifun fara saman. Skipuleggjendur leggja áherslu á góða móttöku, skýrt skipulag og notalegt umhverfi þar sem markmiðið er að skapa góðar minningar fyrir stúlkur í 6. flokki, bæði innan vallar og utan.

Heimasíða mótsins

Hér fer skráning fram á mótið
Slapp
banner
banner
banner