Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   þri 05. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd horfir til Mateus Fernandes
Mynd: EPA
Manchester United er komið í barátttuna um portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes, sem er á mála hjá fallbaráttuliði West Ham, en þetta segir Telegraph.

Það er fastlega gert ráð fyrir því að Fernandes, sem er 21 árs gamall, muni yfirgefa West Ham í sumar.

West Ham er komið aftur í fallsæti eftir tap liðsins um helgina, en þó aðeins stigi á eftir Tottenham þegar þrír leikir eru eftir.

Fernandes heur heillað á fyrsta tímabili sínu í West Ham-treyjunni, en hann kom til félagsins frá Southampton á síðasta ári fyrir 38 milljónir punda.

Man Utd hefur mikinn áhuga á Fernandes og bætir þar í hóp fjölda félaga, en Paris Saint-Germain hefur einnig mikinn áhuga.

Telegraph segir að Man Utd hafi rætt um að leggja fram formlegt tilboð ef West Ham fellur.

Fernandes þreytti frumraun sína með portúgalska A-landsliðinu í mars er hann kom inn á fyrir Bruno Fernandes í 2-0 sigri á Bandaríkjunum.
Slapp
banner
banner
banner