„Við hleypum þeim náttúrulega inn í leikinn, við vorum að reyna að þétta pakkann, en sóknarlega var ekkert að frétta hjá okkur," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir 2-1 tap gegn Víkingi R..
„Mér fannst við óverðskuldað komnir yfir í hálfleik, en svona er þetta," sagði hann enn fremur.
„Mér fannst við óverðskuldað komnir yfir í hálfleik, en svona er þetta," sagði hann enn fremur.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Fjölnir
Þetta var þriðji tapleikurinn í röð hjá Fjölni, Gústi var spurður út í sjálfstraustið í leikmannahópnum.
„Það ætti að vera í lagi, en það vantar eitthvað upp á hjá okkur og við þurfum að standa saman og snúa þessu við."
Næsti leikur Fjölnis er gegn Víkingi Ólafsvík og það er gríðarlega mikilvægur leikur.
„Við erum bara í þessum pakka (fallpakkanum), það er ekkert öðruvísi og við þurfum bara að koma okkur út úr þessu saman og gera þetta almennilega, eins og menn."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.





















