Ramón Calderon, fyrrum forseti Real Madrid, kynnti í dag risa ráðstefnu sem hann og Arnari F. Reynisson standa fyrir í Hörpu í maí.
Ráðstefnan heitir „Hvernig fór Ísland að þessu?“ Markmiðið ráðstefnunnar er að velta því upp hvaða lærdóma megi draga, m.a. fyrir viðskiptalífið og aðrar þjóðir, af því hvernig Íslandi hefur tekist að snúa vörn í sókn í bæði íþróttum og efnahagsmálum.
Ráðstefnan heitir „Hvernig fór Ísland að þessu?“ Markmiðið ráðstefnunnar er að velta því upp hvaða lærdóma megi draga, m.a. fyrir viðskiptalífið og aðrar þjóðir, af því hvernig Íslandi hefur tekist að snúa vörn í sókn í bæði íþróttum og efnahagsmálum.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir okkur. Ísland getur sýnt heiminum hvað þið hafið gert. Ekki bara í íþróttum heldur líka í efnahaginum. Þið hafið á stuttum tíma náð að komast upp á nýjan leik eftir hrunið og eruð núna á undan mörgum þjóðum," sagði Ramón við Fótbolta.net í dag.
„Þetta verður mjög áhugaverður viðburður. Við verðum með heilan dag fyrir viðskipti og fótbolta en um kvöldið einblínum við á fótbolta og EM 2016. Þar verða fyrrum leikmenn og þjálfarar að ræða hvað mun gerast í Frakklandi og fleira."
Stór nöfn á leið til landsins
David Moyes, Kevin Keegan, Ruud Gullit, Martin O'Neill og Chris Coleman eru á meðal þeirra sem mæta á ráðstefnuna en þeir eru spenntir fyrir því að koma til Íslands.
„Það eru allir spenntir. Þegar þetta varð að veruleika fyrir nokkrum vikum talaði ég við þessa aðila og þeir töldu að það væri mjög góð hugmynd að vera hérna, þar sem kraftaverkið átti sér stað. Við viljum útskýra fyrir heiminum hvernig þið gerðuð þetta. Þetta er frábært tækifæri og menn eru spenntir."
Íslendingar fá tækifæri á að kaupa miða á ráðstefnuna á næstunni. „Fólk getur spurt spurninga og lært af þessu fólki. Þetta er fólk sem hefur spilað og þjálfað landslið og í Meistaradeildinni. Þetta er frábært tækifæri fyrir fólk."
Bjartsýnn á gengi Íslands á EM
Calderón er bjartsýnn á að íslenska liðið geti gert góða hluti á EM í sumar.
„Fyrst og fremst þarf liðið að taka þetta skref fyrir skref. Liðið er komið á EM og næsta skref er Portugal, Ungverjaland og Austurríki. Það er alltaf hörð samkeppni en ég er viss um að liðið geti farið áfram. Ef liðið kemst í útsláttarkeppnina þá er þetta bara einn leikur og allt getur gerst. Ég man þegar við Spánverjar komum hingað 1991 og þið unnið 2-0. Við bjuggumst ekki við því, en það gerðist."
Vantar leiðtoga og skipulag hjá Real Madrid
Real Madrid er tólf stigum á eftir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni og Calderon er ekki ánægður með stöðu mála hjá sínu gamla félagi.
„Það gengur ekki vel. Undanfarin fjögur ár hafa verið fjórir þjálfarar og það var ekki rétt að gera það. Það hafa verið mismunandi leikstílar. Leikmennirnir eru frábærir en það er ekki það sama og að hafa gott lið. Það þarf leiðtogahæfileika og skipulag," sagði Calderon sem vonar að Real nái að vinna Meistaradeildina.
„Við höfum unnið Meistaradeildina tíu sinnum og lítum á hana sem hluta af sögu af okkar. Ef við getum unnið Meistaradeildina aftur þá væri það frábært."
Zinedine Zidane tók við af Rafael Benitez fyrr á tímabilinu en Calderon vill ekki dæma hann sem þjálfara strax.
„Það er of snemmt að segja. Hann fór úr liði í 2. deild í að þjálfa Real Madrid. Honum skortir reynslu en hann hefur virðingu hjá fólki. Hann veit hvernig búningsklefi fullur af stjörnum er því hann var í svoleiðis búningsklefa. Það getur hjálpað honum. Ég vona að honum eigi eftir að ganga vel," sagði Calderón.
Hér að ofan má hlusta á viðtalið í heild sinni.





















