„Ég er svekktur með tapið gegn sterku liði KA“ Sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fram eftir 3-0 tap gegn KA á Akureyri í dag.
Lestu um leikinn: KA 3 - 0 Fram
„Mér fannst við vera betri aðilinn fyrstu 35 mínúturnar og þar sköpum við okkur 3 dauðafæri og það er náttúrulega bara rándýrt að klikka á þeim í svona leik“
„KA kemst smám saman betur inn í leikinn og eftir 60 mínútur skora þeir mark eftir mistök hjá okkur og þá hrynur leikur okkar og menn missa hausinn.“
Leikmannahópur Framara hefur tekið miklum breytingum í vetur en Ásmundi lýst vel á sumarið sem er framundan: „Í augnablikinu lýst mér vel á hópinn, spennandi að púsla þessu saman.“
Nánar er rætt við Ásmund í spilaranum fyrir ofan





















