Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Osimhen hafnar Al Hilal - Vill vera áfram í Evrópu
Mynd: EPA
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen er ekki á leið til Al Hilal í Sádi-Arabíu en þetta segir ítalski íþróttafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio.

Al Hilal hafði náð samkomulagi við Napoli um kaup á Osimhen og var í viðræðum við framherjann um kaup og kjör.

Félagið gerði honum nokkur samningstilboð, en öllum var hafnað.

Osimhen, sem er 26 ára gamall, var að færast nær samkomulagi sem hefði gert hann að einum launahæsta leikmanni heims. Al Hilal var reiðubúið að greiða honum 45 milljónir evra í árslaun og búið að bóka læknisskoðun fyrir hann, en nú hefur hann formlega hafnað tilboðinu og lokað á viðræðurnar.

Þetta er líklega mest svekkjandi fyrir Napoli sem hefði fengið 75 milljónir evra fyrir Osimhen, en óvíst er hvort Galatasaray eða önnur félög séu reiðubúin að greiða þann verðmiða.

Markmið Osimhen er að vera áfram í Evrópuboltanum og er Galatasaray komið aftur í baráttuna um hann.

Nígeríumaðurinn eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Galatasaray þar sem hann endaði markahæstur er liðið vann bæði deild- og bikar.

Samkvæmt erlendum miðlum ætlar Osimhen að taka sér tíma í að velja næsta áfangastað, en hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner