Þýski sóknartengiliðurinn Florian Wirtz er að öllum líkindum að skipta yfir til Englandsmeistara Liverpool eftir að hafa verið lykilmaður í sterku liði Bayer Leverkusen.
FC Bayern og Manchester City eru meðal félaga sem vildu kaupa Wirtz í sumar en hann kaus að skipta til Liverpool. Hann verður dýrasti leikmaður í sögu félagsins þar sem Leverkusen vill fá 150 milljónir evra fyrir ungstirnið sitt.
Wirtz er 22 ára gamall og segir Florian Plettenberg fréttamaður Sky að leikmaðurinn sé sannfærður um að félagaskiptin muni ganga í gegn á næstu dögum.
Sky í Þýskalandi býst við að Leverkusen og Liverpool nái samkomulagi um kaupverð á næstu þremur dögum. Eftir það mun Wirtz fara beint í læknisskoðun í Liverpool og vera kynntur sem nýr leikmaður félagsins.
„Wirtz er sannfærður um að félagaskiptin muni ganga í gegn á næstu dögum," segir Plettenberg meðal annars.
Wirtz verður annar leikmaðurinn sem skiptir frá Leverkusen til Liverpool í sumar eftir kaup félagsins á hollenska vængbakverðinum Jeremie Frimpong.
Athugasemdir