Brasilíska félagið Santos hefur greint frá því að Neymar, aðalstjarna liðsins, hafi smitast af Covid-19 veirunni.
Neymar snéri aftur heim til Santos um áramótin en aðeins tekist að spila tólf leiki.
Sóknarmaðurinn hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu ár og nú eru það veikindin sem herja á hann.
Santos greinir frá því í dag að Neymar hafi greinst með Covid-veiruna og hann sé nú kominn í einangrun.
Í raun missir hann ekki af neinum leik vegna veirunnar, en hann var í leikbanni þegar Santos mætti Fortaleza á föstudag og spilar Santos næst eftir mánuð.
Neymar hefur því líklega leikið sinn síðasta leik fyrir Santos, en samningur hans rennur út um mánaðamótin og hefur hann verið sterklega orðaður við endurkomu í Evrópuboltann.
Athugasemdir