Alisson, markvörður Liverpool og brasilíska landsliðsins, segir að Liverpool muni líklega virkja ákvæði um að framlengja samning hans til 2027.
Brasilíumaðurinn er einn allra besti markvörður heims og verið það síðustu ár.
Hann kom til Liverpool frá Roma árið 2018 og átt stóran þátt í að koma Liverpool aftur í fremstu röð.
Samningurhans hjá Liverpool rennur út á næsta ári en Alisson er viss um að félagið muni virkja ákvæði sem framlengir samninginn til 2027.
„Ég átt eitt ár eftir af samningnum og félagið með möguleika að framlengja samninginn um ár til viðbótar, sem það mun væntanlega gera,“ sagði Alisson.
HM landsliða fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári og segir Alisson því næsta tímabil vera svakalega mikilvægt.
„Ég hugsa um það sem ég er með í hendi, sem er að gera frábærlega í markinu. Þetta er mikilvægt augnablik á mínum ferli, svona þegar stutt er í HM,“ sagði Alisson enn fremur.
Athugasemdir