Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Brynjar Björn hafnaði öðru tilboði fyrir Víking: Skil að þetta lítur út fyrir að vera sérstakt
Brynjar Björn kemur inn í þjálfarateymi Víkings sem meðþálfari Sölva Geirs í komandi Evrópuleikjum.
Brynjar Björn kemur inn í þjálfarateymi Víkings sem meðþálfari Sölva Geirs í komandi Evrópuleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Bjarki og Brynjar Björn unnu saman hjá HK.
Viktor Bjarki og Brynjar Björn unnu saman hjá HK.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Var síðast aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar hjá Fylki seinni hluta síðasta tímabils.
Var síðast aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar hjá Fylki seinni hluta síðasta tímabils.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fór í viðræður við Leikni en valdi Víking frekar. 'Frá mér séð voru Víkingar að bjóða upp á annað sjónarhorn, maður kemur inn í annað hlutverk. Hitt er ég búinn að gera oft'
Fór í viðræður við Leikni en valdi Víking frekar. 'Frá mér séð voru Víkingar að bjóða upp á annað sjónarhorn, maður kemur inn í annað hlutverk. Hitt er ég búinn að gera oft'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn, Sölvi Geir og Kári Árnason léku saman með landsliðinu.
Brynjar Björn, Sölvi Geir og Kári Árnason léku saman með landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Víkingar komast að því eftir rúma viku hver andstæðingurinn í 1. umferðinni verður.
Víkingar komast að því eftir rúma viku hver andstæðingurinn í 1. umferðinni verður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson var á föstudag tilkynntur sem sérstakur meðþjálfari Víkings fyrir komandi leiki liðsins í Sambandsdeildinni. Brynjar verður svo Víkingi til taks líka í deildarleikjum liðsins.

Það er krafa hjá UEFA að félög séu með aðalþjálfara sem hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðuna en enginn í teymi Víkings var með þá gráðu. Sölvi Geir Ottesen, aðalþjálfari Víkings, klárar þá gráðu á næsta ári, hefur ekki mátt taka hana fyrr.

Fótbolti.net ræddi við Brynjar Björn um nýja starfið.

„Þetta er bara eins og Kári talaði um í viðtalinu við ykkur, við áttum fund, Víkingur hafði þörf á þjálfara með UEFA Pro réttindin sem snýr að Evrópukeppninni. Að öðru leyti verð ég þeim innan handar í deildinni og öðru í kring. Þetta verður alltaf fullt af leikjum, sérstaklega þegar Evrópukeppnin byrjar, stutt á milli leikja, nóg að gera hjá meistaraflokknum," segir Brynjar Björn.

Varstu strax spenntur fyrir þessu?

„Já, ég hafði alveg áhuga á þessu. Víkingur er ásamt kannski 2-3 öðrum félögum kominn með starfsemi og umgjörð sem er aðeins meiri en hjá öðrum félögum. Ég hafði áhuga á að sjá hvernig þeir væru að vinna þetta. Það var kjörið tækifæri til þess að gera það á þennan hátt."

Eini ókosturinn sem ég get séð við þetta í fljótu bragði er sá að þú getur ekki stokkið í laust starf annars staðar á meðan Evrópukeppnin er í gangi, ef það væri eitthvað sem þú vildir.

„Það er samkomulag, ég skuldbindi mig þannig að ég get ekki stokkið eitthvað annað. Ég tekk allavega fyrstu tvær umferðirnar og jafnvel þrjár ef út í það er farið. Svo vitum við ekki hvað verður. Það er kannski ókostur eins og þú orðar það."

„Það spilar líka inn í að við Sölvi og Kári þekkjumst frá því að við vorum í landsliðinu. Viktor Bjarki er líka þarna, við vorum saman í HK. Þetta eru persónur sem maður þekkir og það er auðveldara að koma inn í það en eitthvað splunkunýtt annars staðar."


Reglurnar eru þannig að Víkingum vantaði mann með réttindin, ertu að búast við að vera í sviðsljósi sjónvarpsmyndavéla sem aðalþjálfari Víkings?

„Við verðum það tveir sem samþjálfarar, ég og Sölvi. Maður mun hafa eitthvað með uppleggið að segja, það verður sameiginlega ákvörðun allra á staðnum."

„Ég skil að þetta lítur út fyrir að vera sérstakt, en þegar við förum í praktíkina þá verður þetta held ég nokkuð eðlilegt. Þetta er sennilega fyrsta félagið á Íslandi sem lendir í þessu, en félög úti hafa að einhverju leyti stundað þetta: aðalþjálfarann hefur vantað einhver réttindi og einhver fenginn inn sem hefur tekið þá ábyrgð á sig."


Hvernig hafa síðustu mánuðir verið eftir að þú varst aðstoðarþjálfari Rúnars Páls hjá Fylki? Ertu búinn að vera í leit að starfi, eða einhver leitast eftir þínum starfskröftum?

„Eðli starfsins er kannski þannig að það er erfitt að leita að því. Ég hef beðið aðeins rólegur, tekið mér smá pásu og aðeins kúpla mig út. Maður er samt aldrei alveg út úr fótboltanum, báðar dæturnar eru að spila fyrir Gróttu og önnur með unglingalandsliðunum, þannig ég hef fylgt því á eftir aðeins, fylgst með því úr stúkunni. Ég hef fylgst með Bestu deildinni frá því hún byrjaði og svo Lengjudeildinni þegar hún fór af stað."

„Fyrir utan Fylki þá var þessi þjálfaramarkaður svolítið mettur í október/nóvember, lítið um tilfæringar og ég átti í raun ekki samtal við neinn í fyrra haust. Það gerist ekki fyrr en í síðustu viku sem Leiknir hefur samband."


Varstu spenntur fyrir Leikni?

„Ég var það alveg, ég held það sé ekkert leyndarmál að þeir buðu mér starfið. Við áttum ágætis samtal í tvo daga. Það varð kannski ekkert ofan á, en það var kannski þetta nýja sjónarhorn inni hjá Víkingi sem varð úrslitafaktor."

„Ég var reyndar búinn að ná samkomulagi við Víking fyrir 2-3 vikum, búnir að eiga samtal. Það er kannski ekki alveg að gerast á sama tíma, en þegar Víkingar ætluðu að fara tilkynna mig sem þeir gerðu svo á föstudag, þá kom Leiknir upp og við því frestuðum tilkynningunni því um nokkra daga."

„Ég var alveg spenntur fyrir Leikni, þeir eru með góða leikmenn og að vinna gott starf. Ég þekki Sigþór (Júlíusson, framkvæmdastjóra) ágætlega frá fyrri tíð. Frá mér séð voru Víkingar að bjóða upp á annað sjónarhorn, maður kemur inn í annað hlutverk. Hitt er ég búinn að gera oft, kom inn í lið á miðju tímabili hjá Grindavík og Örgryte. Það er langt og strangt tímabil."

„Leiknir vann reyndar Fylki, en það tekur alltaf smá á að koma inn og tekur smá tíma að koma sínu fram."


Að þjálfa í Evrópuleikjum, er það box til að tikka í?

„Já, klárlega. Ég hef mína reynslu að einhverju leyti úr því sem leikmaður og síðan úr Stjörnunni (sem aðstoðarþjálfari) á sínum tíma líka. Það er gaman að sjá önnur lið, sjá hvernig þau stilla sér upp og skipuleggja sig. Það eru öðruvísi áskoranir, þó að þú eigir kannski að vera betra liðið eða leikurinn jafn fyrir fram, þá þarftu alltaf að bera virðingu fyrir andstæðingnum og undirbúa þig vel. Það er fullt af góðum þjálfurum þarna úti og maður veit aldrei nákvæmlega hverju maður er að fara mæta. Það er svona það skemmtilega við Evrópukeppnina."

Að lokum, þú vannst með Viktori Bjarka Arnarssyni hjá HK. Hvernig er að endurnýja kynnin við hann?

„Bara gaman, við erum alltaf í góðu sambandi. Það er gaman að vinna með honum, hann er flinkur og gott að vera í kringum hann. Víkingarnir eru heppnir að hafa hann inni í sínu þjálfarateymi," segir Brynjar Björn sem tekur til starfa hjá Víkingi eftir landsleikjahléið.

17. júní kemur í ljós hvaða liði Víkingur mætir í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni, liðið verður í efri styrkleikaflokki í þeim drætti. Leikirnir í 1. umferð fara fram 10. og 17. júlí.
Athugasemdir
banner
banner