Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 17:37
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino útilokar endurkomu til Tottenham
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefur verið orðaður við endurkomu til Tottenham Hotspur á dögunum.

Pochettino þjálfaði Spurs frá 2014 til 2019 og náði góðum árangri með félagið án þess þó að landa titli.

Hann var spurður eftir 2-1 tap Bandaríkjanna í æfingalandsleik gegn Tyrklandi á dögunum hvort hann væri að íhuga endurkomu til Tottenham.

„Það er ekki raunhæft að ég taki við Tottenham núna. Ég er að sinna verðugu verkefni hérna með starfsteyminu, við höfum engan áhuga á að skipta um verkefni," sagði Pochettino.

„Síðan ég fór frá Tottenham 2019 hefur nafnið mitt alltaf verið á lista fjölmiðla yfir mögulega arftaka. Það er óþarfi að gefa því einhvern trúverðugleika, það eru alltaf 100 þjálfarar orðaðir við starfið hjá Tottenham. Þetta þýðir ekki neitt.

„Ég er svo ánægður í þessu starfi að ég er ekki einu sinni að hugsa um að skipta."


Pochettino er afar spenntur fyrir því að stýra Bandaríkjunum á HM á heimavelli á næsta ári.

Thomas Frank, danskur þjálfari Brentford, er líklegastur til að taka við stjórn hjá Tottenham.
Athugasemdir
banner