Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Dortmund vill fá Sancho í þriðja sinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýska félagið Borussia Dortmund er líklega að missa kantmanninn Jamie Bynoe-Gittens til Chelsea í sumar.

Félagið er því að líta í kringum sig til að fylla í skarðið og er Jadon Sancho ofarlega á óskalistanum samkvæmt Sky Sports.

Það eru mörg félög áhugasöm um Sancho en launapakki leikmannsins gæti komið í veg fyrir félagaskipti, eins og gerðist með Chelsea.

Sancho er hæfileikaríkur kantmaður sem hefur átt erfitt með að ná stöðugleika í frammistöðum sínum síðan hann var mikilvægur hlekkur í sterku liði Borussia Dortmund frá 2017 til 2021.

Man Utd borgaði 73 milljónir punda til að kaupa hann í júlí 2021 en Sancho stóðst ekki væntingarnar sem til hans voru gerðar.

Eftir þrjú ár án árangurs hjá Man Utd var Sancho lánaður aftur til Dortmund í fyrra og stóð sig vel. Hann var í kjölfarið lánaður til Chelsea síðasta haust og gerði fína hluti undir stjórn Enzo Maresca.

Chelsea vildi kaupa Sancho en náði að lokum ekki samkomulagi við leikmanninn um samningsmál. Sancho vill 300 þúsund pund í vikulaun eins og hann fær í Manchester, en Chelsea var ekki reiðubúið til að borga honum meira en 150 til 200 þúsund pund á viku.

Mögulegt er að Sancho verði lánaður út aftur ef engu félagi tekst að semja við leikmanninn um laun. Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við United og gæti skipt yfir til Dortmund í þriðja sinn á ferlinum.

Sancho er 25 ára gamall og með 23 A-landsleiki að baki fyrir England.
Athugasemdir
banner
banner