Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 18:43
Ívan Guðjón Baldursson
Real Madrid borgar 45 milljónir fyrir Mastantuono
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti Franco Mastantuono til Real Madrid.

Samkvæmt Romano borgar Real Madrid 45 milljónir dollara til að kaupa Mastantuono frá River Plate. Mögulegt er að Real þurfi að greiða 10 auka milljónir í skatta tengda félagaskiptunum.

Mastantuono er búinn að samþykkja sex ára samning hjá Real Madrid en hann verður hjá River Plate fram í ágúst. Argentínska stórveldið vill nota hann á HM félagsliða í sumar.

Mastantuono er aðeins 17 ára gamall en hann verður 18 ára um miðjan ágúst og getur þá skipt opinberlega til Real Madrid.

Hann hefur verið eftirsóttur af ýmsum stórveldum en kaus að lokum Real.

Mastantuono er argentínskur og hefur verið líkt mikið við Lionel Messi.

Hann á einn A-landsleik að baki fyrir Argentínu þrátt fyrir ungan aldur, eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í U17 og U20 landsliðunum á síðustu árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner