Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 14:28
Elvar Geir Magnússon
Belfast
Sverrir Ingi: Stefnan er að vera með og allt er á réttri leið
Sverrir Ingi vonast til að geta spilað gegn Norður-Írlandi.
Sverrir Ingi vonast til að geta spilað gegn Norður-Írlandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var einn besti leikmaður íslenska landsliðsins sem vann 3-1 útisigur gegn Skotlandi í vináttulandsleik á Hampden Park á föstudag.

Hann fór af velli á 77. mínútu eftir að hafa haldið um lærið á sér. Hann ferðaðist hinsvegar með til Belfast þar sem Ísland mætir Norður-Írlandi í öðrum vináttulandsleik á þriðjudag.

Mate Dalmay ræddi við Sverri Inga á hóteli landsliðsins í Belfast í dag og spurði hann út í stöðuna.

Sverrir segist vera þokkalegur eftir að hafa þurft að fara af velli. Hann fékk slink á mjöðmina í fyrri hálfleik og stífnaði upp þegar leið á seinni hálfleikinn. Honum leið vel á æfingu í dag og verður tekin ákvörðun eftir æfinguna á morgun með þátttöku gegn Norður Írum.

„Stefnan er að vera með og allt er á réttri leið," segir Sverrir. Viðtalið við hann verður birt í heild sinni hér á Fótbolta.net á morgun.
Athugasemdir
banner