
Hörður Björgvin Magnússon snéri aftur á völlinn með íslenska karlalandsliðinu í 3-1 sigrinum á Skotum á föstudag, sem var hans fyrsti byrjunarliðsleikur í tæp tvö ár.
Miðvörðurinn sleit krossband í byrjun tímabils 2023 og snéri ekki aftur til æfinga fyrr en ári síðar.
Snemma á síðasta tímabili ráðfærði Hörður sig við Ramon Cugat, einn helsta hnésérfræðing heims, og kom þar í ljós að hann þurfti að fara í aðra aðgerð til að laga mistök úr fyrri aðgerð.
Önnur endurhæfing tók við en hann hafði æft af fullum krafti í tvo mánuði áður en hann spilaði síðustu mínúturnar með Panathinaikos gegn Olympiakos í lokaumferð grísku deildarinnar.
Samningur Harðar rennur út í lok mánaðar og er ljóst að hann verður ekki áfram þar.
Miðvörðurinn sleit krossband í byrjun tímabils 2023 og snéri ekki aftur til æfinga fyrr en ári síðar.
Snemma á síðasta tímabili ráðfærði Hörður sig við Ramon Cugat, einn helsta hnésérfræðing heims, og kom þar í ljós að hann þurfti að fara í aðra aðgerð til að laga mistök úr fyrri aðgerð.
Önnur endurhæfing tók við en hann hafði æft af fullum krafti í tvo mánuði áður en hann spilaði síðustu mínúturnar með Panathinaikos gegn Olympiakos í lokaumferð grísku deildarinnar.
Samningur Harðar rennur út í lok mánaðar og er ljóst að hann verður ekki áfram þar.
Lestu um leikinn: Skotland 1 - 3 Ísland
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, ákvað að velja Hörð í hópinn fyrir þennan glugga og kom mörgum á óvart að hann hafi byrjað gegn Skotum, en það var alltaf planið að sögn þjálfarans.
„Okkur langaði að láta hann spila 45 mínútur og langar að hann fái góðan klúbb í sumar og spili svo fullt af leikjum í haust. Endatakmarkið er að hann verði klár í haust. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði Arnar við Fótbolta.net.
Hörður kom nokkuð vel frá leiknum en Arnar var þó alveg undirbúinn undir það að sjá smá ryð í leik hans.
„Það var alltaf planið að láta hann spila 45 mínútur. Var hann ryðgaður? Vissulega og við áttum alveg von á því, en heilt yfir var ég mjög sáttur við hans frammistöðu og bara ánægður að sjá hann vera kominn aftur í landsliðsbúninginn,“ sagði Arnar enn fremur.
„Celtic, Rangers eða Aberdeen gætu alveg tekið hann“
Benedikt Bóas Hinriksson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson ræddu landsleikinn gegn Skotum í útvarpsþætti Fótbolta.net um helgina og ræddu þar ákvörðun Arnars að byrja Herði.
Valur velti þar fyrir sér hvort þarna hafi Arnar verið að sýna Hörð til að auka áhuga annarra liða og láta þau vita að hann sé heill heilsu.
„Það sem mér fannst áhugaverðast í þessu er með Hörð Björgvin og að hann byrjar. Okkur vantar varnarmenn það er alveg vitað mál. Ég hugsaði er Arnar bara að sýna hann? Hann er án félags og kannski auðveldara fyrir hann að fá félag. Mér fannst þetta svo skrítið,“ sagði Valur og tók Benedikt Bóas undir það.
„Hann sagði fyrir leikinn að þeir væru að reyna hjálpa þessum gaurum. Ég veit ekkert hver er umboðsmaðurinn hans Harðar en þetta er góður gluggi fyrir hann að sýna sig. Celtic eða Rangers gætu alveg tekið Hörð Björgvin eða Aberdeen. Hann er með tengingar út um allt,“ sagði Benedikt Bóas.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa félög frá Grikklandi, Ítalíu og Mið-Austurlöndunum sýnt Herði áhuga undanfarnar vikur.
Tómas Þór segir þennan glugga bestan til þess að leyfa Herði að spila og að þetta gæti gefið landsliðinu miðvörð fyrir undankeppni HM.
„Ekki bara það þetta er líka mjög Arnar Gunnlaugsson-legt move. Þú ert ekki búinn að spila í tvö ár, þú bara startar. Færð traustið og smá 'man-management' Þetta er algerlega 'low-risk' 'high-reward'. Í versta falli gefur hann mark, sem hann semi gerði, en í lok dag hverjum er ekki sama. Þetta er vináttuleikur og bara við sem eyðum hálftíma í að gjamma um einhvern vináttuleik.“
„Rewardið er þú færð miðvörð í landsliðið. Þetta er 'domino-effect'. Hann spilar þarna, vel eða illa, en þá fara menn að sjá hann spilaði í Bristol og á HM,“ sagði Tómas Þór í lokin.
Athugasemdir