Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frank fær aðstoðarmanninn með sér - Þekkir Tottenham vel
Thomas Frank.
Thomas Frank.
Mynd: EPA
Tottenham er að ganga frá ráðningu á Dananum Thomas Frank. Hann verður næsti stjóri liðsins en hann tekur við Spurs eftir að hafa stýrt Brentford í mörg ár með eftirtektarverðum árangri.

Það hefur verið útlit fyrir það síðustu daga að Frank myndi taka við en það er núna verið að ganga frá því eftir að samkomulag náðist um að Justin Cochrane yrði hans aðstoðarmaður.

Cochrane hefur undanfarið verið aðstoðarmaður Frank hjá Brentford en hann starfaði áður í akademíu Tottenham. Hann þykir einn efnilegasti þjálfari Englendinga og vildi Thomas Tuchel fá hann í teymi sitt hjá enska landsliðinu.

Chris Haslam og Joe Newton koma einnig með Frank frá Brentford. Sá fyrrnefndi er styrktarþjálfari og sá síðarnefndi er leikgreinandi.

Frank verður því umvafinn teymi sem hann þekkir vel í nýju starfi.


Athugasemdir
banner
banner