John Textor er sagður tilbúinn að selja sinn hlut í Crystal Palace til að binda endi á þá umræðu sem er núna í gangi í varðandi þátttöku félagsins í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Mikið hefur verið rætt og ritað um málið undanfarið en Crystal Palace er í hættu að vera meinað þátttöku í keppninni þar sem Textor á hlut í bæði Crystal Palace og franska liðinu Lyon, sem á einnig að vera í keppninni á næsta tímabili. Það eru reglur hjá UEFA sem banna þetta.

Textor á 43 prósenta hlut í Palace en hann er sagður tilbúinn að selja þann hlut núna.
Samkvæmt The Athletic er fjárfestingahópur frá Bandaríkjunum tilbúinn að kaupa hans hlut fyrir um 200 milljónir dollara.
Jimmy Butler, leikmaður Golden State Warriors, er á meðal þeirra sem eru í þessum fjárfestingarhóp sem er hugsanlega að kaupa Textor út.
Athugasemdir