Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 11:43
Elvar Geir Magnússon
Mamma Tuchel ekki hrifin af pirruðum Bellingham
Bellingham fer ekki leynt með tilfinningar sínar inni á vellinum.
Bellingham fer ekki leynt með tilfinningar sínar inni á vellinum.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands.
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að Jude Bellingham verði að læra að nota tilfinningar sínar og reiði á réttan hátt. Hann segir að móðir sín sé ekki hrifin af hegðun leikmannsins innan vallar.

Bellingham hefur fengið talsverða gagnrýni fyrir að vera gjarn á að láta dómara og samherja í Real Madrid heyra það og fara ekki leynt með pirring sinn. Í landsleik með Englandi gegn Senegal í vikunni var hann reiður yfir VAR ákvörðun í seinni hálfleik.

„Ég vil ekki bæla niður þessar tilfinningar hjá honum en hann þarf að beina þeim í rétta átt. Hann er með mikið keppnisskap og eiginleika sem við viljum halda," segir Tuchel en England tapaði gegn Senegal.

„Hann þarf að halda í þennan neista en stundum sér maður hann reiðast í garð dómara eða liðsfélaga. Ef hann getur beint þessu á réttan hátt, og við getum aðstoðað hann í því, þá er hann klárlega með sérstaka eiginleika sem geta nýst okkur. Hann er góður strákur, mjög opinn og klár. Það hefur verið mjög auðvelt að vinna með honum til þessa."

„Við þurfum að finna út hvernig verið getum notað bestu útgáfuna af honum. Ég get skilið að hann kallar fram misjöfn viðbrögð. Mamma mín horfir á leiki í sjónvarpinu og er ekki hrifin af hegðun Bellingham. Stundum virkar hegðun hans fráhrindandi en þegar hann brosir þá vinnur hann alla á sitt band. Við erum ánægðir með að hafa hann og hann er flottur drengur."
Athugasemdir
banner